5. Hrossaflug flaug í áttina að mér
Í gærkvöldi valhoppaði ég inn í herbergi, aðeins til þess að snúa við og hlaupa út öskrandi eftir að hafa séð eina stærstu hrossaflugu landsins fljúga í átt að mér með hnefann á lofti. [Sjá mynd eða neðan]
4. Raka sig án raksápu
Ég rakaði mig einu sinni án raksápu og var nokkrum mínútum frá því að blæða út.
3. Ástarsorg
Tilhugalífið í heild sinni finnst mér hryllingur. Þess vegna reyni ég að forðast það, með grunsamlega góðum árangri.
2. Kvef
Í hvert sinn sem ég kvefast verð ég fyrir svo miklum vonbrigum að ég leggst í þunglyndi.
1. Fæðing
Ég hef auðvitað aldrei upplifað fæðingu, en mér var einu sinni sagt frá einni slíkri. Það var skelfileg upplifun.
![]() |
| Skýringamynd fyrir atriði #5. Hrossafluga stendur á herbergishurðinni minni með morðglampa í augunum. |









