Nýlega sá ég auglýsingu frá Kredia þar sem boðið er smálán til skamms tíma. Ég fletti þeim upp og þar komu eftirfarandi lánamöguleikar fram:
Lán 1
10.000 króna lán. 12.500 krónur greiddar til baka innan 15 daga.
Lán 2
20.000 króna lán. 24.750 krónur greiddar til baka innan 15 daga.
Lán 3
30.000 króna lán. 37.000 krónur greiddar til baka innan 15 daga.
Lán 4
40.000 króna lán. 49.250 krónur greiddar til baka innan 15 daga.
Í fyrstu hljómar þetta sem ágætis lausn. En þegar betur er að gáð má sjá að vextirnir eru vafasamir.
Þannig að ég útbjó smá Excel skjal sem reiknar út vextina á svona lánum. Í skjalinu [niðurhalið því hér] er hægt að skrá inn upphæðir og lengd láns til að fá út bæði ársvexti (sem er venjulegt form vaxta) og vexti á lánstímabilinu.
Þegar ég hafði slegið inn tölurnar að ofan (og gert ráð fyrir 15 daga löngu láni) fékk ég eftirfarandi niðurstöður:
Lán 1: 608,33% ársvextir.
Lán 2: 577,92% ársvextir.
Lán 3: 567,78% ársvextir.
Lán 4: 562,71% ársvextir.
Til samanburður má nefna að yfirdráttavextir Arion banka eru 13,85% á ári. Þú finnur ekki hærri lánavexti en yfirdráttavexti, þangað til núna.
[Náið í Excel skjalið hér. Lítið skjal án macro.]
föstudagur, 30. júlí 2010
Inception upplifun
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Í gær átti ég afmæli eins og mér einum er lagið (+/- sjö milljarðar). Dagurinn var hnoðfullur af skemmtun. Hann innihélt meðal annars:
3 4:
Myndin fjallar um hóp sem leggur í hættuför í huga erfingja risafyrirtækis í þeirri von að planta hugmynd í kollinn á honum. Myndin er blanda af James Bond, Matrix og Juno.
Hún er mjög vel gerð og skemmtileg. Mæli með henni.
Í kvöld var ég að hugsa um myndina og velta fyrir mér þeim möguleika að versla mér íbúð á næstunni. Ennfremur var ég að velta fyrir mér þeim möguleika að geta dreymt án þess að átta sig á því að vera sofandi. Þá rakst ég á þetta:
- Smekkfullan vinnudag af Excel vinnslu.
- Kaffiboð hjá pabba þar sem boðið var upp á pönnukökur og skemmtilegt spjall.
- Hörkufjöruga körfuboltaæfingu þar sem ég var niðurlægður ítrekað af mun betri leikmanni. Það var mér til happs að ég hef mikla nautn af því að láta niðurlægja mig.
- Bíóferð á Inception (Ísl.: Fjör á fjölbraut).
Myndin fjallar um hóp sem leggur í hættuför í huga erfingja risafyrirtækis í þeirri von að planta hugmynd í kollinn á honum. Myndin er blanda af James Bond, Matrix og Juno.
Hún er mjög vel gerð og skemmtileg. Mæli með henni.
Í kvöld var ég að hugsa um myndina og velta fyrir mér þeim möguleika að versla mér íbúð á næstunni. Ennfremur var ég að velta fyrir mér þeim möguleika að geta dreymt án þess að átta sig á því að vera sofandi. Þá rakst ég á þetta:
![]() |
| Þetta er keyrandi hús. |
INCEPTION
Flokkað undir
Blogg,
Kvikmyndir,
Mynd,
Upptalning,
Viðburðir
þriðjudagur, 27. júlí 2010
Sumarfrí
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Ég tók mér frí fyrir hádegi dag af því ég er of latur til að taka mér alvöru sumarfrí.
Klukkan 10 í morgun var svo hringt í mig úr vinnunni og ég beðinn um að skila smá skýrslu fyrir einhvern fund.
Eftirfarandi gerist þegar:
Klukkan 10 í morgun var svo hringt í mig úr vinnunni og ég beðinn um að skila smá skýrslu fyrir einhvern fund.
Eftirfarandi gerist þegar:
- Ég er vakinn.
- Ég er beðinn um að gera eitthvað.
- Minnið er mjög lélegt.
- Ég er með penna en ekkert til að skrifa á.
- Ég er bara með aðra hendina lausa (hin hélt á símanum).
![]() |
| Fyrir þá sem eru slæmir í líffræði þá er þetta hægra lærið á mér, rétt fyrir ofan hné. |
mánudagur, 26. júlí 2010
Villtur
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Í gærkvöldi náði ég að villast í Reykjavík í fyrsta sinn síðan ég þorði fyrst að keyra bíl hérna (5 ár síðan).
Klukkan 20:15 ákvað ég að kíkja í sund í Árbæjarlaug en hún lokar klukkan 21:00, sem þýðir að hleypt er í hana til klukkan 20:30. Ég þurfti því að hafa hraðar hendur.
Að neðan má sjá kort af svaðilförinni:
Hér er það sem þarf að vita:
Merkilegt nokk þá var þetta ekki versta sundferð sem ég hef farið í. Hún innihélt ca 13-14 tonn af börnum, öskur og eymd. Meira um það aldrei.
Klukkan 20:15 ákvað ég að kíkja í sund í Árbæjarlaug en hún lokar klukkan 21:00, sem þýðir að hleypt er í hana til klukkan 20:30. Ég þurfti því að hafa hraðar hendur.
Að neðan má sjá kort af svaðilförinni:
![]() |
| Smellið á mynd fyrir óþarflega nákvæmt kort í nýjum glugga. |
- Gula línan er leiðin sem ég fór.
- Rauða línan er rétt leið.
- Hjá Álfabakka svínaði strætó fyrir mig. Ég var taugaspenntur fyrir (þar sem tíminn var knappur) svo ég tók glórulausa beygju í Álfabakka.
- Ég var enn pollrólegur, haldandi að það væri ekkert mál að komast úr þessu hverfi. Það var reyndar hægt, skömmu síðar, en þá beygði ég í ranga átt og endaði einhversstaðar í buskanum.
- Klukkan 20:30 áttaði ég mig á stöðunni, staddur í miðju kirkjuhverfi og bölvandi mjög hátt.
- Ég keyrði því í 10-11 og fékk mér að borða.
Merkilegt nokk þá var þetta ekki versta sundferð sem ég hef farið í. Hún innihélt ca 13-14 tonn af börnum, öskur og eymd. Meira um það aldrei.
föstudagur, 23. júlí 2010
Minnisleysi
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Ég hef löngum státað af einu versta minni allra tíma. Hér eru tvö dæmi:
1. Brandari
Eftirfarandi samtal átti sér nýlega stað í spjallforritinu MSN:
Finnur: What is brown and rhymes with Snoop?
Finnur: Dr. Dre
Jónas Reynir: hehe þessi er bestur
Finnur: hehehe já
Jónas Reynir: [brot úr gömlu samtali]
Finnur: andskotinn
Finnur: sá þetta á [netinu] í dag og hló eins og vitleysingur, sjáandi þetta í fyrsta sinn
Jónas Reynir: hann er betri í 2. skiptið
Jónas Reynir: [brot úr gömlu samtali]
Finnur: ég er með rosalega lélegt minni
2. Leit
Ég spurði Jónas Reyni hvort honum væri sama þó ég bloggaði um samtalið að ofan. Hann samþykkti og benti mér á að það væru til helling af svona dæmum um mig í samtalsloggum. Hann bauðst til að leita í þeim. Þetta varð niðurstaðan:
Jónas Reynir: Ég prófaði að leita að orðinu "manstu" í spjall loggunum.
Jónas Reynir: Ég virðist bara hafa notað þetta orð í samtölum okkar.
Jónas Reynir: Þú hefur sagt það einu sinni: [brot úr gömlu samtali]
Ég biðst velvirðingar ef ég hef skrifað þessa færslu áður.

Jónas Reynir: What's brown and rhymes with snoop?
Jónas Reynir: Dr. Dre
Finnur: hahahahaJónas Reynir: hann var sérstaklega góður í ÁGÚST Í FYRRA!!!!!
Finnur: andskotinn
Finnur: sá þetta á [netinu] í dag og hló eins og vitleysingur, sjáandi þetta í fyrsta sinn
Jónas Reynir: hann er betri í 2. skiptið
Jónas Reynir: [brot úr gömlu samtali]
Finnur: beint á facebook með þetta helvíti
Jónas Reynir: kominn
Finnur: hehehehe
Finnur: hann er betri í 2. skiptiðFinnur: vá
Finnur: ég er með rosalega lélegt minni
2. Leit
Ég spurði Jónas Reyni hvort honum væri sama þó ég bloggaði um samtalið að ofan. Hann samþykkti og benti mér á að það væru til helling af svona dæmum um mig í samtalsloggum. Hann bauðst til að leita í þeim. Þetta varð niðurstaðan:
Jónas Reynir: Ég prófaði að leita að orðinu "manstu" í spjall loggunum.
Jónas Reynir: Ég virðist bara hafa notað þetta orð í samtölum okkar.
Jónas Reynir: Þú hefur sagt það einu sinni: [brot úr gömlu samtali]
Finnur: manstu heimilisfangið mitt?
Ég biðst velvirðingar ef ég hef skrifað þessa færslu áður.
Flokkað undir
Blogg
þriðjudagur, 20. júlí 2010
Lyktarskyn lögreglumanna
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Þetta er áhugaverð frétt, svo ekki sé meira sagt. Hún segir frá lögreglu sem er á gangi um Eyrarbakka og finnur kannabislykt. Hún eltir lyktina og rekur hana alla leið að íbúð, þar sem hún kallar á liðsauka og böstar kannabisframleiðslu.
Við fyrstu sýn virðist allt eðlilegt í henni. En ef vel er að gáð má sjá að hún er glórulaus. Nokkur atriði:
Við fyrstu sýn virðist allt eðlilegt í henni. En ef vel er að gáð má sjá að hún er glórulaus. Nokkur atriði:
- Lögreglan er í eftirlitsferð. Hvenær sáuð þið lögreglu gangandi í eftirlitsferð síðast utan miðbæjarsvæðis?
- Þeir finna kannabislykt. Og elta lyktina? Að húsi? Að íbúð í húsi? Það er ótrúlega vel gert.
- Þeir eru svo logandi hræddir við þessa kannabislykt að þeir hringja í liðsauka? Af hverju? Héldu þeir að kannabisneytendurnir væru snarvitlausir?
- Í íbúðinni var verið að framleiða kannabis með þar til gerðum rafmagnsþungum gróðurhúsalömpum. Ég efast um að kannabisframleiðendur hafi verið að reykja á meðan framleiðslu stóð, þar sem mér skilst að efnið sé mjög letjandi.
Þetta finnst mér líklegra:
- Lögreglan skoðaði rafmagnsreikningana á Eyrarbakka og sá óvenju háan rafmagnsreikning í umræddri íbúð, sem er vísbending um ræktun einhverskonar.
- Lögreglan ákveður að banka upp á, með liðsauka.
- Í ljós kemur kannabisræktun. Handtökur.
- Lögreglan skáldar einhverja fáránlega sögu um að lögreglan sé með lyktarskyn á heimsmælikvarða á göngu um hverfið, þar sem ég geri ráð fyrir að ólöglegt sé að njósna um rafmagnsnotkun einstaklinga.
Ef þetta er rétt frétt legg ég til að lögreglan starti nussveit, sem gengur um íbúðarhverfi og nusi út í loftið í þeirri von að finna helling af kannabisbófum.
mánudagur, 19. júlí 2010
Vafasöm skokkleið
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Í gær fór ég út að hlaupa aldrei þessu vant en það geri ég þegar ég er á mörkum þess að missa vitið úr hreyfingarleysi. Virkni mín hefur snarlega minnkað eftir að ég ákvað að taka mér pásu frá lyftingum og tognaði frekar illa frá körfuboltanum fyrir næstum mánuði síðan.
Allavega, ég skokka yfirleitt á kvöldin og á nóttunni í Kópavogi. Hér er síðasta skokkleiðin:
Lítur þetta kunnuglega út? Hér er smá hjálp:
Lítur þessi færsla kunnuglega út? Hér er önnur svipuð færsla frá í febrúar.
Ef undirmeðvitund mín les þetta: Hættu að láta mig ganga í furðulegar útlínur séð úr nokkra kílómetra hæð! Fólk er farið að horfa undarlega á mig.
Ef samstarfsfólk mitt les þetta: Engar áhyggjur, það er erfitt að finna minna ofbeldisfullan einstakling en mig.
Allavega, ég skokka yfirleitt á kvöldin og á nóttunni í Kópavogi. Hér er síðasta skokkleiðin:
![]() |
| Er skemmtilegra en lítur út fyrir að vera úr lofti. |
![]() |
| Brjánn Byssa. |
Ef undirmeðvitund mín les þetta: Hættu að láta mig ganga í furðulegar útlínur séð úr nokkra kílómetra hæð! Fólk er farið að horfa undarlega á mig.
Ef samstarfsfólk mitt les þetta: Engar áhyggjur, það er erfitt að finna minna ofbeldisfullan einstakling en mig.
laugardagur, 17. júlí 2010
Draumfarir
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Í nótt dreymdi mig handbolta. Hvað ætli það geti þýtt?
Draumaráðningar eru í mínum huga kjaftæði en aðalreglan þar er að eitthvað öfugsnúið við það sem þig dreymir muni gerast. T.d. ef þig dreymir gjaldþrot þá muntu verða ríkur og svo framvegis.
Eftir að hafa dreymt leiðinlegustu íþrótt allra tíma, handbolta, spilaði ég skemmtilegustu íþrótt allra tíma í dag, körfubolta. Svo draumaráðningarnar virkuðu í þetta skiptið fyrir einhverja stórkostlega heppni.

föstudagur, 16. júlí 2010
Hugtök í myndaformi
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Hér eru nokkur hugtök sett fram í myndaformi. Allar myndirnar voru teknar í vikunni af engum öðrum en mér sjálfum!
1. Sparnaður
Með því að eyða einu eða tveimur kvöldum vikunnar í að sitja einn heima í sófanum og smyrja sér samlokur á meðan horft er á Baldna Folann, má spara sér gríðarlegar fjárhæðir.
Ég spara meira að segja smá auka með því að kaupa mér saltlaust álegg því tárin sem falla í smjörið á meðan á þessu stendur innihalda ráðlagðan dagskammt af salti og vel það.
Aukaráð: Fínt er að láta gera sérstaka poka sem á stendur "500 króna sparnaður" til að minna sig á sparnaðinn sem verður til við þetta (sjá mynd að ofan). Pokarnir fást þrír saman í pakka og kosta litlar 7.000 krónur.
2. Þróun
Allar gerðir dýra hafa þróast í það sem þau eru núna fyrir tilstilli náttúruvals. Kex er þar engin undantekning, lærði ég í kvöld.
Á myndinni má sjá þróunarkenninguna að verki. Svo virðist sem stökkbreyting hafi átt sér stað í DNA-i kexins og fótur myndast. Það hefði verið spennandi að sjá hvernig kexinu hefði vegnað í náttúrunni með þennan nýja fót, en ég borðaði það og lauk því ævi þess. En af því það var svo girnilegt fengu önnur kex að lifa. Náttúruvalið að verki.
Smelltu á 'Sjá meira' fyrir þriðju myndina en það er hreyfimynd! Spennandi!
1. Sparnaður
![]() |
| Alls um 2.500 króna nettó sparnaður! |
Ég spara meira að segja smá auka með því að kaupa mér saltlaust álegg því tárin sem falla í smjörið á meðan á þessu stendur innihalda ráðlagðan dagskammt af salti og vel það.
Aukaráð: Fínt er að láta gera sérstaka poka sem á stendur "500 króna sparnaður" til að minna sig á sparnaðinn sem verður til við þetta (sjá mynd að ofan). Pokarnir fást þrír saman í pakka og kosta litlar 7.000 krónur.
2. Þróun
![]() |
| Stökkbreyting! |
Á myndinni má sjá þróunarkenninguna að verki. Svo virðist sem stökkbreyting hafi átt sér stað í DNA-i kexins og fótur myndast. Það hefði verið spennandi að sjá hvernig kexinu hefði vegnað í náttúrunni með þennan nýja fót, en ég borðaði það og lauk því ævi þess. En af því það var svo girnilegt fengu önnur kex að lifa. Náttúruvalið að verki.
Smelltu á 'Sjá meira' fyrir þriðju myndina en það er hreyfimynd! Spennandi!
Flokkað undir
Blogg,
Kenning,
Mynd,
Upptalning
miðvikudagur, 14. júlí 2010
π
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
![]() |
| Tölustafamynd getur aðeins þýtt eitt: spennandi bloggfærsla. |
Ég prófaði samt að taka fyrstu 1.120 aukastafina, setja upp í línurit og taka 100 tölustafa hreyft meðaltal:
![]() |
| Ef ekki væri fyrir Excel hefði ég tekið nokkrar vikur í að teikna þetta. |
![]() |
| Virðist vera smá speglun við fimm, ef núll er undanskilið. |
Ég náði þó að svala Excel blætinu mínu og er afslappaðri fyrir vikið.
Flokkað undir
Excel
mánudagur, 12. júlí 2010
Sáðlát plantna
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
![]() |
| Troðfullur runni af sáði fífils. |
Svo virðist sem blóm (fífill líklega) hafi fundið ástina og fullkomnað sambandið í þessum runna. Vel gert!
Ég get ekki annað en samglaðst fíflinum og hefði ekki hikað við að gefa honum high-five ef hann hefði ekki verið búinn að láta sig hverfa úr runnanum þegar mig bar að garði.
Excelskjal: Leitarvél
Höfundur:
Finnur Torfi Gunnarsson
Hér er fyrsta dæmið um Excel skjal sem ég hef unnið [niðurhalið hér 6 mb]. Ástæðan fyrir því að það er svona stórt er að það er vistað í Excel 2003 sniði. Þið afsakið litasamsetninguna, hún er öðruvísi í Excel 2007.
Þetta skjal gerði ég fyrir IJBL gervi NBA deild og það virkar sem leitarvél fyrir alla leikmenn deildarinnar. Þið þurfið ekki að skilja hvað tölurnar tákna.
Nokkur atriði varðandi skjalið:
[Þessi færsla er skráð til að bæta við þjónustuhluta síðunnar]
Þetta skjal gerði ég fyrir IJBL gervi NBA deild og það virkar sem leitarvél fyrir alla leikmenn deildarinnar. Þið þurfið ekki að skilja hvað tölurnar tákna.
Nokkur atriði varðandi skjalið:
- Hægt er að velja stöðu leikmanna í C2 í drop-down-menu.
- Hægt er að velja sérstakt lið í D2 í drop-down-menu.
- Aldur er valinn í E2. Leitað er að jafnaldra eða yngri. Dæmi: 25 skilar 25 ára og yngri. Sama gildir um sellur AG2-AL2.
- Sellur G2-AC2 leita að jafnt og eða meira. Dæmi: drb 50 skilar 50 í drb eða meira.
- Hægt er að leita að einum eða fleiri atriðum. Ef ekkert er slegið birtist listi yfir alla leikmenn.
- Uppröðunin á leikmönnunum er eftir styrkleika eftir fyrirfram ákveðinni formúlu.
- Leitarvélin sækir gögn í Grunnskjal sem er falið og auðvelt er að uppfæra með keyrsluskjali úr deildinni.
- Skjalið er læst svo ekki sé hægt að eyða út mikilvægum sellum. Aðeins er hægt að slá inn leitarstrengi í rétta reiti.
[Þessi færsla er skráð til að bæta við þjónustuhluta síðunnar]
Flokkað undir
Excel
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)