sunnudagur, 25. mars 2012

Hin heilaga þrenna sturtunnar

Í kvöld náði ég hinni heilögu þrennu eftir sturtu þegar ég:

1. Fékk nógu mikið sjampó upp í mig í sturtunni til að finna andstyggilegt bragð þess og gleypa það óvart.
2. Sprautaði svitalyktaeyði í handakrikana með opinn munninn og fékk dass af spreyinu upp í mig.
3. Sletti smá vott af rakakremi karlmennskukremi eða einhverju á varirnar á mér og sleikti óvart út um skömmu síðar, aðeins til að finna ógeðslegt bragðið.

Í bónus náði ég þeim fáheyrða árangri að kýla mig óvart í klofið við að þurrka mér eftir sturtu. Enginn sá það gerast, held ég, svo ég þóttist bara vera að biðja í þurrkunaraðstöðunni á meðan ég komst yfir versta tímabilið, áður en ég haltraði í svitalykta og karlmennskukremasmökkunina.

0 athugasemdir:

Skrifa ummæli

ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.