fimmtudagur, 11. ágúst 2011

Peugeot getraun



Getraun dagsins: Hvaða fantasíu minni tengist myndin að ofan?
  1. Scarlett Johansson samþykkti að fara á Peugeot rúnt með mér.
  2. Ég hef selt bifreið mína til sex ára fyrir meira en 500 krónur.
  3. Peugeot bifreið mín komst í gegnum skoðun í fyrstu tilraun með aðeins þremur athugasemdum.
  4. Ég keypti mér hafnaboltakylfu í dag til að nota á bílinn eftir vinnu.
  5. Ég hef loksins lært að taka beinar myndir.
  6. Allt að ofan.
  7. Ekkert að ofan.
  8. Atriði 2 og 5.
  9. Atriði 1 og 8.
  10. Ég komst upp úr blogglægðinni sem er að hrjá mig með því að taka þessa mynd.
Fyrir rétt svar fæst eitt stig. Fyrir rangt svar fást mínus 5 stig. Fyrir ekkert svar fást mínus 15 stig.
Svar: 3. Og mögulega 1. Á eftir að spyrja.

3 ummæli:

  1. Hvað með: Scarlett Johansson er farin að vinna hjá Frumherja og hleypir Peugeot í gegn, athugasemdalaust, gegn því að þú borgir fyrir skoðunina í blíðu?

    SvaraEyða
  2. já...held að það sé rétt hjá Esther:) en svarið er klárlega að hann fór í gegn í tilraun 1 :)

    SvaraEyða
  3. Esther: Ég held ég þyrfti að fara í dauðadá til að ná að dreyma svo villt.

    Gylfi: Það var rétt. Þú getur sótt píanóið sem er í verðlaun heim til mín.

    SvaraEyða

ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.