þriðjudagur, 11. janúar 2011

Minn versti óvinur

Í dag er ég í smá fýlu við Fortíðar Mig sem hugsaði ekki út í að Nútíma Ég þurfti að vinna fullan vinnudag í dag, þegar hann fór í tíubíó í gærkvöldi á mjög langa mynd. Fortíðar Ég getur verið skíthæll.

Hann var reyndar svo hugulsamur að smyrja samloku fyrir Nútíma mig í gærkvöldi, til að biðjast afsökunnar. En Fortíðar Ég át hana svo í morgun þegar hann vaknaði. Dæmigert.

2 ummæli:

  1. ág er ávalt brjálaður út í Fortíðar Mig sem hugsaði ekki út í að Nútíma. Hann er þroskaheft vangefinn.

    SvaraEyða
  2. Fortíðar við ættu að skammast okkar.

    SvaraEyða

ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.