Einstein í góðum gír. |
Þau undur og stórmerki áttu sér svo stað í gær að ég varð vitni að einhverju sem hefði getað sannað þessa umræddu kenningu, ef ég hefði verið með myndavél á mér.
Ég var keyrandi á Nýbýlavegi þegar atvikið átti sér stað. Svo undrandi varð ég að ég stoppaði bílinn, fór út og benti öskrandi. Skömmu síðar stoppuðu aðrir bílar og bílstjórar stigu út, gapandi í forundran. Hið ómögulega hafði gerst.
Eftir nokkrar mínútur af faðmlögum og óendanlegri hamingju yfir þessari vísbendingu um að mannkynið sé ekki dauðadæmt, settumst við, vitnin, í bílana og ókum af stað með hamingjutárin í augunum.
Kenning Einstein, ef ég man rétt, var eitthvað á þessa leið:
„Jeppabílstjórar geta og munu einn daginn gefa stefnuljós í hringtorgum eins og venjulegt fólk.“
Jeppinn sem gaf stefnuljós í hringtorgi á Nýbýlaveginum er beðinn um að hafa samband við Alþjóðleg samtök vísindamanna í Sviss.
Heyrðu ég var að tala við frænda minn í símann áðan. Hann var víst að keyra þennan jeppa. Þetta var óvart hann rak hendina í stöngina þegar hann var að beyja á jeppanum. Því miður.
SvaraEyðaSvo virðist sem að þeir hafi þá líkamlega burði til að gefa stefnuljós. Það er breakthrough.
SvaraEyða