Futurama² |
1. Lánaskjal [Niðurhalið hér]
Þetta skjal reiknar út allar upplýsingar sem þarf við uppsetningu á allt að tveimur lánum. Mest hugsað fyrir húsnæðiskaup en virkar líka fyrir minni lán.
Það eina sem þarf að gera er að fylla í reitina þar sem örvarnar benda og samantekt afborganna birtist á aðalsíðunni. Nánari greiðsluáætlun birtist svo í "Lán 1", "Lán 2" (hafirðu fyllt í reiti fyrir lán 2) og "Summa lána".
Hægt er að velja um tvær gerðir lána; lán með jöfnum afborgunum og jafngreiðslulán. Hafið samband við mig í finnurtg@gmail.com eða athugasemdum ef eitthvað er óljóst.
Ath. Þetta skjal er aðeins hægt að keyra í Excel 2007+ fyrir PC tölvur.
2. Random nafn á Futurama þáttum [Niðurhalið hér]
Þetta agnarsmáa skjal birtir tilviljunakennt nafn á þætti af Futurama við það eitt að velja "Já, takk". Það hjálpar forföllnum aðdáendum Futurama að velja þætti til að horfa á í sjötugasta skipti.
Skjalið virkar fyrir Excel 2003+.
Þessu skjali hefur verið bætt við á þjónustusíðuna.
Þetta er svaðaleg tækni ! Ertu úr framtíðinni ?
SvaraEyðaNúna já. Var það samt ekki þegar ég skrifaði þessa færslu.
SvaraEyða