 |
Tölustafamynd getur aðeins þýtt eitt: spennandi bloggfærsla. |
Pí er ummál hrings deilt með þvermáli hans og hefur endalausa aukastafi. Aukastafirnir virðast vera algjörlega handahófskenndir.
Ég prófaði samt að taka fyrstu 1.120 aukastafina, setja upp í línurit og taka 100 tölustafa hreyft meðaltal:
 |
Ef ekki væri fyrir Excel hefði ég tekið nokkrar vikur í að teikna þetta. |
Að því loknu taldi ég hvaða tölustafir koma oftast fyrir í aukastöfunum:
 |
Virðist vera smá speglun við fimm, ef núll er undanskilið. |
Niðurstaða: Engin. Ég sé ekkert merkilegt í þessari agnarsmáu rannsókn og lærði ekkert annað en að aukastafirnir virðast áfram algjörlega handahófskenndir í uppröðun.
Ég náði þó að svala Excel blætinu mínu og er afslappaðri fyrir vikið.
Ef maður horfir á efra línuritið úr fjarlægð koma í ljós dulin skilaboð.. "Woww"
SvaraEyðaÓ. Mér fannst standa "MAMMA" úr fjarlægð. Var að spá í að tattooa þetta yfir bakið á mér.
SvaraEyða