Hér er fullkomlega tæmandi listi yfir það fólk sem ég væri mjög til í að hitta undir eins:
1. Manninn sem hannaði viskustykkið mitt
Þetta töfra viskustykki er þeim eiginleika gætt að þurrka ekki neitt heldur bara ýta bleytunni til á yfirborðinu. Ég myndi reyna mitt besta að berja hann ekki í andlitið með hamri.
2. Scarlett Johansson
Ég myndi reyna mitt besta að berja hana ekki ítrekað í andlitið með vörunum á mér.
3. Ungan mig
Ég myndi vara sjálfan mig við því að kaupa Peugeot, því hatrið sem ég ber í brjósti í garð bíls míns er farið að hafa varanleg áhrif á heilsu mína.
4. Gamlan mig
Ég myndi spyrja mig um hvað ég bloggaði árin eftir að ég eyðilagði Peugeotinn minn með eldvörpu sumarið 2011.
Frekar ættirðu að fara í tímavél, á þá stund þar sem þú keyptir þennan fjandans Peugeot og fá þig til að kaupa hann ekki.
SvaraEyðaMæli með því að þvo viskustykkið (og handklæði, sérstaklega ný) á suðu (60°) án mýkingarefna.
SvaraEyðaSpritti: Og láta bloggið koðna niður? Nei takk!
SvaraEyðaFreyr: Takk kærlega. Ég prófa. Það verður erfitt að venjast því að þurrka án sumarlyktarinnar. En fjandinn hafi það, ég verð að láta mig hafa það.