Í dag reyndi ég að fá mér nýtt ökuskírteini þar sem mitt gamla innihélt ekki mynd af mér lengur og ég þarf það til að stofna bankareikning. Upphófst skriffinnskusena: [hlustið á Benny Hill þemalagið á meðan þið lesið]
1. Skrapp úr vinnunni.
2. Fékk vin til að taka af mér passamynd.
3. Setti passamyndina á USB lykil.
4. Fór á sýsluskrifstofuna í Kópavogi, þar sem afgreiðslumaður sagði mér að koma með útprentaða passamynd*. Hann lét mig fá bráðabirgðaskírteini fyrir bankann.
5. Fór í bankann, þar sem starfsmaður sagðist ekki geta tekið við bráðabirgðaskírteini.
6. Kom við í vinnunni, leitaði mér upplýsinga og vann smá.
7. Fór með USB lykilinn á ljósmyndastofu og lét prenta passamyndina út.
8. Fór á sýsluskrifstofuna og sótti um nýtt ökuskírteini. Það tekur tvær vikur að gera nýtt skírteini, sem er 13 dögum of mikið. Þannig að ég bað um nafnskírteini í staðinn, sem á að taka minni tíma. Það gerist á þjóðskrá.
9. Fór á þjóðskrá. Hún hafði verið færð úr stað. Svo ég gekk smá spöl að réttu húsi.
10. Þar var ég beðinn um tvær (útprentaðar) passamyndir, sem ég gleymdi í bílnum.
11. Sæki myndir og sný aftur en er þá beðinn um ökuskírteini. Bráðabirgðaskírteini gæti dugað, en ég gleymdi því líka í bílnum.
Þegar hingað er komið við sögu hafði ég verið við vinnu í tvo tíma og úti að "skreppa" í þrjá tíma, svo ég sagðist ætla að koma síðar þar sem ég vildi hvorki vera rekinn né hlæja** framan í afgreiðslukonuna, sem var þegar mjög pirruð.
En hafið ekki áhyggjur. Ég vann til klukkan 20 í kvöld til að bæta upp fyrir vinnutapið.
* Ég þurfti að taka mynd, setja á USB lykil, láta prenta hana út á "fínan pappír" og láta sýslumann fá, svo hann gæti skannað myndina inn og prentað svo út á ökuskírteinið. Snjallt ferli.
** Með "hlæja" á ég auðvitað við "gráta".
Benny Hill lagið er virkilega skemmtilegur fítus í þessari færslu! En já, það er ekki hægt að "skreppa í smá" í skriffinnskuerindum á Íslandi, algjört helvíti.
SvaraEyðaÞakka þér! Og já, það er ótrúlega mikið vesen. En skemmtilegt samt. Af því bensínið er svo ódýrt.
SvaraEyða