þriðjudagur, 6. desember 2005

Ég steingleymdi að láta lesendur vita af því að jólaprófin hjá mér eru hafin. Einu prófi er lokið og fékk ég 8 úr þeim æsileiðinlega áfanga sem Viðskiptalögfræði er.

Allavega, í ljósi prófs í Framleiðslustjórnun á morgun kemur hér listi yfir allar aðgerðir dagsins:

* Vöknun.
* Tannburstun.
* Fataklæðun.
* Keyrsla í skólann.
* Gleyma símanum heima: Keyra til baka og aftur í skólann.
* Lestur.
* Reikningur.
* Bloggskrif.

Þetta er, eins og allir mínir listar, fyllilega tæmandi atburðarás í réttri röð. Einum leiðinlegasta degi ævi minnar að ljúka. Ég hef þó engar áhyggjur; morgundagurinn verður eflaust leiðinlegri.
Í dag mæli ég með:

* Saw 2 sem sýnd er í bíóhúsum þessa dagana. Frábær mynd í anda Seven, þó að hún sé ljósárum frá því að vera jafn góð og hún.

* Sovétríkjabolnum sem ég er í í dag. Rauður hamar og sigð á svörtum fleti á gullfallegum manni.

* Athyglisbresti. Hann er merkilega

* Heyrnatöppum til að sporna gegn athyglisbrestinum.

* Að skrifa ekki bloggfærslur svo ég geti einbeitt mér betur að lærdómnum.

* Að skrifa ekki fleiri meðmæli en þetta.

mánudagur, 5. desember 2005

Í fyrradag sá ég Bjarna Fel kaupa sér kjúklingaborgara og í dag sá ég Gilzenegger, holdi klæddan, í HR rétt si svona, bara eins og um venjulegar manneskjur væri að ræða.

Hvað gerist næst er óskráð blað. Kannski, bara kannski, verð ég svo heppinn að rekast á Þorstein Pálsson, fyrrum alþingismann á næstunni.
Baldur heitir drengur góður. Hann er býsna fróður um ýmis málefni og mikill fjársjóður. Nýlega hóf hann bloggróður sem verður án efa mikið andlegt fóður fyrir okkur netsóðana. Hann er vanur ritstörfum og verður því ekki móður við skrifin, jafnvel þótt að bloggið verði honum tjóður.

Þarmeð lauk mínum rímferli með stórslysi.

Kíkið á bloggið hans hér (eða ég verð óður (ég varð)).

sunnudagur, 4. desember 2005

Ég - Skyndibiti = Gleraugu + talsvert af hroka, skilst mér.

Ég kann ekki aðra aðferð til að tilkynna að ég borða of mikið af skyndibita um leið og ég hef verið bendlaður við hroka. Mér er nokk sama um þetta hrokadót þar sem fólk er helvítis fífl.
Í dag sá ég konu taka lyftu af annari hæð niður á þá fyrstu. Ég hef sjaldan orðið vitni að jafn mikilli leti og mér er nákvæmlega sama þó hún hafi verið í hjólastól.
Þið megið ráða hvort þið lesið:

1.
Hér er tillaga til lærdómsfólks sem er slæmt í maga vegna prófakvíða; Fáið ykkur bjórhnetur, sama hversu slæm þið eruð í maganum fyrir. Ef það nægir ekki; fáið ykkur Bombu orkudrykk með þeim.

2.
Viðvörun til lærdómsfólks; ekki borða bjórhnetur yfir lærdómnum. Þær fara mjög illa í maga, sérstaklega þegar þið hafið verið slæm í maganum vegna stress(s) og hafið enga list á þeim. Ennfremur mæli ég ekki með því að drekka orkudrykk ofan í þessa martröð.

Annars líður mér ágætlega, fyrir utan æluþörfina, stingandi magaverkinn og sársaukafullu þrengslin í heilaæðunum.

laugardagur, 3. desember 2005

Í nemendafélagi HR eru fátækir nemendur sem vilja bara fá ódýran eða ókeypis bjór í vetur, auk þess sem nokkrir eru skráðir til að fá nemendaíbúðir.

Nýlega var einn úr nemendafélaginu dreginn út og fékk hann nýja bifreið til afnota í eitt ár. Þetta gæti komið sér mjög vel fyrir fátæka nemendur.

Hver sigraði? Tannlæknir sem borgaði nemendagjaldið bara í sprellkasti. En þetta kom sér vel því hún var hvort eð er að leita sér að öðrum bíl þar sem einn bíll er ekki nóg fyrir fjölskylduna hennar. Fjúkk.

Þetta er skilgreiningin á kaldhæðni í Íslensku Orðabókinni.
Þriðja leik Forsetans (sem er mitt lið) í utandeild Breiðabliks lauk í gær með sigri Forsetans á Hröfnunum 31-22. Eins og áður segir eru leikirnir aðeins 32 mínútur þar sem klukkan er ekki stöðvuð þegar bolti er úr leik, sem útskýrir vonandi lágt stigaskor.

Í þetta sinn var öll tölfræði leiksins rituð niður. Hér er hún:




ATH. Tvö stig voru gefin fyrir vítaskot og eitt víti tekið í hverri ferð á línuna.
Mínúturnar eru gróflega áætlaðar.

Þakkir fær Björgvin fyrir að rita tölfræðina á glæsilegan og sannfærandi hátt.

föstudagur, 2. desember 2005

Ég keypti mitt fyrsta belti í gær af illri nauðsyn. Hér eru afleiðingarnar:

* Fólk er hætt að sjá nærbuxurnar mínar, í skólanum amk.
* Ég get hætt að ganga með báðar hendur í vösum, þykjast vera svalur þegar ég er bara að halda buxunum uppi.
* Ég get skrifað sms og labbað núna.
* Ég verð aldrei pípulagningarmaður.
* Núna get get dansað kúrekadans, vantar bara kúrekastígvél, kúrekahatt, sylgju og takt.
Hlýðið á!

Hér eftir verð ég alltaf nefndur í fleirtölu. Þeir sem það ekki gera eru að vanvirða bóluna sem myndast hefur nálægt andliti mínu.

fimmtudagur, 1. desember 2005

Ég mæli með því að fólk sem vill ekki láta skemma fyrir sér heilmikið ævintýri hætti að lesa núna þar sem ég ætla að tilkynna svolítið spennandi. Ég hef beðið eftir þessum degi í margar vikur núna. Prófin, sem eru í gangi þessa dagana, hafa fallið í annað sætið hjá mér og sumar nætur hef ég ekki getað sofið af spennu, aðrar af kvíða. Dagurinn er amk runninn upp.

Í fyrsta ramma jóladagatalsins er kerti og það er gómsætt á bragðið.