|
|
| Aðalhlutverk: | Michael Cera og Portia Doubleday.
|
| Bíó og tímasetning: | Smárabíó, sunnudagurinn 30. maí kl 22:10.
|
| Félagsskapur: | Björgvin bróðir í hálf fullum sal 4.
|
| Saga myndar: | Ungur og bældur strákur verður hrifinn af stelpu (Cera formúlan) og grípur til þess ráðs að verða illur til að fanga athygli hennar. Upphefst ævintýri.
|
| Leikur: | Michael Cera leikur yfirleitt sama vandræðalega og feimna karakterinn. Hann gerir það líka hér, en það er í lagi, þar sem hann gerir það mjög vel. Hann sýnir þó á sér nýja hlið í þessari mynd með fínum árangri. Aðrir leikarar falla í skuggann á honum.
|
| Annað varðandi mynd: | Grínmynd með ögn af drama. Nokkuð fyndin, aðallega fyrir tilstilli Michael Cera (og handritshöfunda, auðvitað).
|
| Boðskapur myndar: | Það er í lagi að vera feiminn, ef þú ert geðveikur líka.
|
| Fróðleikur: | Það eru nokkrir frægir leikarar í aukahlutverkum í myndinni. Þar á meðal Nánar tiltekið Ray Liotta, Justin Long, Steve Buscemi og Zach Galifianakis.
|
| Stjörnugjöf: | Fyndin mynd sem hægt er að horfa á oftar en einu sinni. 3 stjörnur af 4. |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.