Þórey heitir stelpa sem er upphaflega frá Eskifirði. Hún eignaðist nú nýlega barn eins og vinsælt er á meðal ungra stúlkna og um svipað leiti hóf hún dagbók á netinu.
Hún uppfyllir öll þau skilyrði til að fá hlekk hjá mér en þau eru eftirfarandi:
Bloggínan þarf að...
...hafa hlekk á mig.
...vera skemmtileg.
...vera með bláa síðu.
...vera fögur ásýndum.
...vera með mynd af sjálfri sér húkkandi far á miðjum vegi á síðunni.
...vera hærri eða jafnt og 170 cm á hæð.
...vera lægri eða jafnt og 170 cm á hæð.
Aðeins þarf að uppfylla eitt þessara skilyrða til að fá hlekk frá mér.
Til hamingju með hlekkinn Þórey, það fær ekki hver sem er hlekk hérna. Eða jú annars.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.