Ein mínúta í miðnætti. Verð að segja eitthvað sniðugt svo ekki eigi sér stað blogglaus dagur. Verð að skrifa um eitthvað sem hefur gerst og svo eitthvað sniðugt í lokin. Kannski frá deginum sem einkenndist af skokki, tiltekt, tveimur sturtum, matarboði og bloggleysi. Kannski ég segi bara frá myndinni sem ég horfði á í gær, nei annars enginn tími fyrir svo langa færslu.
Hvað sem þú gerir, Finnur, ekki vera svo spenntur að þú skrifar jafnóðum það sem þú hugsar. Það getur ekki endað vel.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.