Það rifjaðist upp fyrir mér í gær þegar ég horfði enn einu sinni á
Fight club að maðurinn sem leikur feita og lata manninn í myndbandinu við lagið 'Lazy', sem
David Byrne syngur við undirleik einhverra tölvugúrúa, leikur afgreiðslumanninn á flugvellinum í
Fight club þegar eitthvað titrar í tösku aðal söguhetjunnar (sem á sér ekki nafn framan af mynd). Að sjálfsögðu varð ég að fletta honum upp (feita og lata manninum) og komst að því að hann heitir
Robert J. Stephenson og er að finna
hér. Það er greinilegt að
Fight club hefur fleitt honum áfram í átt að heimsfrægð, rétt eins og
tilveran.is hefur gert við mig og mína síðu í morgun. Takk
tilvera.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli
ATH. Þegar athugasemd hefur verið rituð þarf stundum að staðfesta hana, eftir að smellt hefur verið á "Post Comment". Hafið það í huga.